Persónuvernd
Hvernig Nýpugarðar fara með persónuupplýsingar þínar þegar þú skoðar vefinn, bókar gistingu eða hefur samband við okkur.
Síðast uppfært 16. september 2026
Hver við erum
Nýpugarðar ehf., kt. 510805-0380, Nýpugörðum, 781 Höfn í Hornafirði, ber ábyrgð á þeim persónuupplýsingum sem hér er fjallað um. Þú nærð í okkur á nypu@simnet.is eða í síma 893 1826.
Vefurinn
Vefurinn setur engar vafrakökur, vistar ekkert í vafranum þínum og notar engin auglýsinga- eða rakningartól. Við teljum heimsóknir með Cloudflare Web Analytics, sem virkar án vafrakakna og þekkir þig ekki, svo við sjáum aðeins heildartölur, til dæmis hve margir komu og hvaða síður voru lesnar. Vefurinn er hýstur hjá Cloudflare, sem vinnur með tæknileg gögn á borð við IP-tölu til að koma síðunum örugglega til þín.
Bókanir
Þegar þú bókar beint hjá okkur gerir þú það í bókunarkerfinu okkar, Godo. Upplýsingarnar sem þú slærð inn þar, svo sem nafn, netfang, símanúmer og dagsetningar dvalarinnar, berast okkur svo við getum tekið á móti þér, og Godo geymir þær fyrir okkur. Vefurinn sjálfur tekur aldrei við þeim. Ef þú bókar í gegnum Booking.com eða aðra ferðaskrifstofu geymir það fyrirtæki bókunina líka, samkvæmt eigin persónuverndarstefnu.
Tölvupóstur og sími
Ef þú skrifar okkur eða hringir notum við það sem þú segir okkur til að svara þér og undirbúa dvölina.
Til hvers við notum upplýsingarnar
Við notum upplýsingarnar til að efna bókunina, sem er samningur milli þín og okkar, og til að sinna lagaskyldum okkar, til dæmis um bókhald. Við seljum ekki upplýsingarnar þínar.
Hve lengi við geymum þær
Við geymum bókunarupplýsingar eins lengi og við þurfum vegna dvalarinnar og bókhaldsins. Samkvæmt lögum um bókhald þarf að geyma bókhaldsgögn í sjö ár.
Réttindi þín
Þú getur beðið um að sjá þær upplýsingar sem við höfum um þig, fá þær leiðréttar eða, þar sem lög leyfa, fá þeim eytt, og þú getur andmælt því hvernig við notum þær. Sendu okkur línu á nypu@simnet.is. Ef þér þykir svarið ekki fullnægjandi getur þú kvartað til Persónuverndar á personuvernd.is.